þriðjudagur, ágúst 12, 2003

ARRRRGGGG Í gær var mánudagur og ég var að drekka bjór... what is happening, -ég virðist stefna hraðbyri í átt til glötunar
-hildur bytta

mánudagur, ágúst 11, 2003

"Einn, tveir og allir komi saman
allir þeir sem hafa af skál og kvennafari gaman
gráti væl og grenjitón
ei gegnir nokkur kjaftur
syngjum dátt og höfum hátt
hellt´í glasið aftur!!!"

sunnudagur, ágúst 10, 2003

Vá hvað það var ógeðslega gaman hjá mér um helgina. Var bara að koma heim, mig langar aftur út... NÚNA!!! Ótrúlega ótrúlega ÓTRÚLEGA GAMAN!

Bara verst að þurfa að fara aftur og vita að maður á sennilega aldrei eftir að hitta stóran hluta af öllu nýju vinunum aftur :c( grát en kannski... það má alltaf vona

föstudagur, ágúst 01, 2003

Ég er að fara í ferðalag tralalalalala!!! Gisti á Akureyri í nótt og við Mývatn næstu nótt og svo aftur á Akureyri og svo í Borgarfirði og svo heima hjá mér í tvær nætur og svo í DTU í 3 nætur og svo er ég ein heima í langan tíma held ég. Það er bara allt að gerast!!! JíHAAAAA!!!

Anyways, must go and buy food and stuff

sé ykkur seinna

miðvikudagur, júlí 30, 2003

Líst vel á næstu daga vikur og mánuði, bjartsýni er ríkjandi í heimi Hildar þessa stundina :-)

og ef einhver vill kíkja með mér og sjá Darcy í bíó annað kvöld endilega hringja í mig...

fimmtudagur, júlí 24, 2003

Kemst ekki með í útilegu um helgina

sunnudagur, júlí 20, 2003

Fór með IAESTE til Skaftafells núna þessa helgi og það var alveg rosalega gaman. GEÐVEIKT veður, alveg sól og bongó! Sumir brunnu smá, enda pakkaði engin sólarvörn (nema Helga og ég fékk hjá henni *nananana*) og búðin á staðnum átti ekki til neina vörn... Svo nú er ég rauð og sæt...
Fór meðal annars að vaða í einhverri á/læk í fötunum, voða sniðugt... allir hinir (við vorum 6, restin ~ 30 voru einhverstaðar annarsstaðar) fóru úr skónum og brettu uppá buxurnar, en neeei, ég stökk náttúrulega bara útí og fór að skvetta á þau (mjög gaman!). Svo óð ég eitthvað innúr og þau komu svo syndandi á eftir mér. Svo lét ég plata til að fara synda með þeim, alveg ótrúlega skemmtilegt.
Tölti líka upp að Svartafossi og túristaðist.
Datt svo í það á laugardegi og vorum að syngja og spjalla fram eftir nóttu!
Já sko, þetta var bara alveg snilldar helgi!!!

Og Rúna, ég mæli með því að þú sækist eftir því að gerast svona AISEC gella... þá getum við verið að skipuleggja svona alveg allan daginn út og inn ;-)

þriðjudagur, júlí 15, 2003

Hildur says:
Svaf yfir mig (var ég að horfa á vídjó fram á nótt, -nei hélt ekki)... var komin út á tröppur 9:05 (sem er nokkuð gott miðað við að ég vaknaði 8:45) en hvað gerist...
Bílinn minn er horfinn!!! ARRRRGGG hugsa ég, ég sem faldi bíllyklana sérstaklega svo bróðir minn gæti ekki stolið bílnum
Hildur says:
nema hvað, hann hefur stolið bílnum og öllu mínu hafurtaski.
Undir venjulegum kringumstæðum væri þetta ekkert svo slæmt, nema hvað pabbi er útúr bænum á bílnum sínum og mamma var í vinnunni á bílnum sínum. Sé ég þá ekki litlu rauðu tíkina (ath: tík = bíldrusla) og hugsa: tek þessa.
Hildur says:
Ræsi Tönju (eiganda áðurnefndrar tíkar) en neeeeeiii, hún er búin að týna bíllyklunum!!! Ég meina týna þeim, hvernig týnir maður bíllykli?!?!?!!
Hildur says:
Svo það endaði á að ég tók leigubíl í vinnuna, alltof sein, átti að mæta á fund klukkan 9:30, var of sein. UTTER SUCKY KRAPPINESS!!!

laugardagur, júlí 12, 2003

Fjúff, hvað ég er þreytt. Hvenær á maður eiginlega að fá að sofa út? Ég er alveg gjörsamlega búin að því, svaf 4 tíma síðustu nótt (og var geðveikt þreytt eftir vikuna), fór svo óvart á eitthvað djamm í gær, klukkan var að ganga fimm þegar ég kom heim. Og svo náttúrulega vakna snemma í dag... shhhhjjjjiiii... hvað ég er þreytt...
Pæling að fara jafnvel bara að leggja sig...

föstudagur, júlí 11, 2003

Dumdurumm... ótrúlega skrýtið hvað einn lítil vísindaferð getur haft mikil áhrif á líf manns... Núna í vor fór ég einmitt í eina svona life changing vísó, lenti á tali við stelpu sem sagði mér frá alveg hreint ótrúlega sniðugu félagi sem hún var í forsvari fyrir, namely IAESTE. Ég náttlega læt platast alveg um leið, og núna er ég komin á kaf í þetta IAESTE dót, partý hægri vinstri, Esju ferðir, útlendingaeftirlit (sorrý, útlendingastofnun), Danmerkur ferð, sækjandi útlinga á Loftleiðir um miðja nótt og so videre og videre. Allt af því að mér finnst bjór góður...

mánudagur, júlí 07, 2003

Haffi þér ferst!!!

Annars á ég ekkert frekar von á að ég nenni að skrifa eitthvað mikið hérna inn í sumar, maður er alltaf í einhverju aksjóni eða þá sofandi og hefur enga orku í eitthvað svona heimasíðu/blogg vesen...

fimmtudagur, júlí 03, 2003

tralalala ég er að fara til útlanda í ágúst nananana híhíhí :-)
búin að panta flug og alles, ég er svo dugleg (ferðaskrifstofan Mamma, -ef þú veist hvað ég meina)

Annars er ég með alveg ferlegt lag á heilanum: "JockStrap we rap, G-String I sing..." þeir sem voru með mér á Spáni kannast kannski við að ég hafi sungið þessa laglínu full oft (og svo náttúrulega: "það er svo undarlegt með unga menn...")

þriðjudagur, júlí 01, 2003

úpps... klikkaði alveg á að láta ykkur vita að ég væri búin með Potterinn, kláraði hann samdægurs. Vill einhver vita endinn??? híhíhí
Anyway þá var helgin fín hjá mér, ætlaði í partý og fór í partý, en ruglaði eitthvað aðeins saman húsnúmerum svo ég fór í vitlaust hús og dinglaði á vitlausri bjöllu og fann svo ekki partýið. Fór bara heim í fýlu, en sem betur fer þá á ég vini á msn sem nenna að tala við mig (kannski svona einu sinni í viku, ekki oftar) og buðu mér heim að glápa á vídjó. Sem ég og gerði. Gaman að glápa á vídjó.

Laugardagurinn fór svo allur í að lesa Potter og glápa meira á vídjó, og sunnudagurinn var álíka mikil leti. Semsagt, letilíf and I like it!!! :-P

laugardagur, júní 28, 2003

busy reading Harry Potter

föstudagur, júní 27, 2003

ohhhh!!! Ég skil ekki þessa svokölluðu jafnréttisumræðu. Afhverju eru konur alltaf að halda því fram að aðrar konur (og alls ekki þær sjálfar) séu fórnarlömb? Bæði í launaumræðunni og í vændisspekúlasjóninni. Get ekki annað en tekið undir með manninum sem skrifaði greinina í fréttablaðinu í gær og fyrradag um að það væri í rauninni miklu hollara fyrir konur að líta á sig sem gerendur þegar verið er að fjalla um launamismun kynjanna. Málið er nefninlega hreinlega það að konur virðast sætta sig við lægri laun og þar af leiðandi fá þær lægri laun. Vinnuveitandanum er sennilega nákvæmlega sama um hvort það er karl eða kona sem vinnur verkið svo framarlega sem það er unnið sómasamlega og svo vill hann helst borga sem minnst fyrir það. Skárra væri það nú!!

Og með vændið, hvað er að vændi??? Svo framarlega sem fólk (og Nota Bene, það eru til karlhórur alveg eins og kvenhórur!) er í þessu að eigin vali þá finnst mér barasta ekkert að því.

Ef mér langar til að selja mig þá finnst mér nú bara að ég bloody well eigi að fá að gera það í friði!
hmm... nýr blogger... gef honum séns...

ætlaði bara að minna alla á að það er ljótt að stríða fólki með gleraugu

þriðjudagur, júní 24, 2003

Og bara svo þið vitið það þá var ég þvílíkt dugleg um síðustu helgi, labbaði á Esjuna með Þórunni (MASSAKÖGGLARNIR LIFI) og málaði þakið á sumarbústaðnum (ásamt Berglindi). Reyndar var það svoldið skrýtið að um leið og við vorum búnar að mála og komnar niðraf þakinu þá hvarf sólin, PÚFF, og himinninn fylltist af skýum og fimm mínútum síðar kom demba... frekar súrt, vona samt að það hafi ekki allt lekið af...
Smá tilraun að fara í gang, smá svona Jónsmessunætur galdrar sko. Er svo forvitin að sjá hverjum ég myndi giftast að ég fór útí garð og týndi margar tegundir af villtum blómum (og eina úr potti, ekki segja mömmu). Vissi reyndar ekki að það væru svona margar tegundir af villtum blómum í garðinum, fann alveg heilar 11 tegundir (þ.e. ef maður telur grasið með) man nefninlega ekki alveg hversu margar tegundir þarf í þennan galdur, 7 eða 9 minnir mig. En hvað um það, ég ætti að vita allt um hver hinn raunverulegi draumaprins minn er í fyrramálið.

Annars bara búið að vera gaman, fór í Fjölskyldu og húsdýragarðinn áðan (opið frá 11-1 í tilefni Jónsmessunnar) og heyrði kýrnar tala á miðnætti, sá líka selina og geiturnar og litlu sætu lambalærin *slúrp*. Og svo auðvitað öll hin dýrin.

föstudagur, júní 20, 2003

HAHAHAHA Tanja missti af fluginu sínu til Danmerkur í morgun, pælið í því, að missa af flugi!!! Samt eiginlega ekkert fyndið, þurfti að kaupa sér nýjan flugmiða á fullu verði hjá öðru flugfélagi og ekki séns að miðann endurgreiddan. Hefði hún komið korteri fyrr þá hefði hún sennilega náð því... *jæks*

fimmtudagur, júní 19, 2003

Keyrði næstum á rottu áðan!!! Ikkí hlussu kvikyndi, frekar ógó!! Á sjálfri Miklubrautinni, hún var að koma úr Kringlunni (eða þar í nágreninu). Bíllinn við hliðana á mér klossbremsaði alveg til að forðast að keyra á flykkið... svo hún var lifandi the last time I knew, og stefndi hraðbyri í áttina að nýju heimili Evu og Haffa... stuð...

miðvikudagur, júní 18, 2003

hmmm... ég bara skil iggi, það skrifast aldrei neitt hingað inn. Furðulegt

laugardagur, júní 14, 2003

Úje!!! Hverjir eru bestir?!!?! Þórunn og Hildur!!! Jááááááááá!!!
Við línuskautuðum frá Gljúfrasteini (í Mosfellsdal) og niðrí Nauthólsvík í morgun!!! Bara frábært hjá okkur!!!

Massakögglarnir lifi!!!
úff, klukkan er 6 og ég er nýkomin heim eftir að hafa farið í partý þar sem ég þekkti ekki neinn. Massagaman, mæli með því :-)

fimmtudagur, júní 12, 2003

Eitthvað hefur borið á því að fólk hafi verið að tjá sig um rafting ferðina. Það hefur oftast bara verið í örfáum orðum og í ekkert gaman að því. Þess vegna hef ég ákveðið að skrifa mína sögu. Hvernig var helgin hjá mér:

mánudagur, júní 09, 2003

Luck can´t last a lifetime unless you die very young

þriðjudagur, júní 03, 2003

Svo þurfa allir að muna að taka með sér hlý föt, sérstaklega mikilvægt að vera með góða sokka og eitthvað hlýtt að ofan. Annars bara klæða sig eftir veðri, og vonast eftir sól :-)

PS þeir sem ætla með í rafting eru:

ég Haffi
Þórunn Daði
Jón Bjarni Anna
Ari Ester
Hrafnkell Eiki

Svo eru einhverjir sem ætla bara í útileguna (enda ekki hreystimenni eins og við hin hehehe)
Búin að panta!

mánudagur, júní 02, 2003

Ok, stefnan er tekin á rafting í Jökulsá - Austari kvíslinni næsta laugardag kl: 12 (etta er sko í Skagafirði).
Hef ekki náð í alla sem höfðu lýst yfir áhuga á að fara svo endilega hafið samband við mig. Planið gerir ráð fyrir útilegu þessa helgi svo að þeir sem þora ekki í ánna eru velkomnir með, en þeir þurfa að finna sér sjálfir eitthvað til dundurs á meðan við hreystimennin tökumst á við náttúruöflin

Hlakka til hlakka til tralalala

þriðjudagur, maí 27, 2003

Haffi byrjaði á þessu, og af því að þetta hefur lengi verið smá hobbý hjá mér I´ll just have to lay words in a ballon...

Seldom comes there one wave single (obbvíuslý, obbvíuslý)
Nobody becomes an unbeaten bishop (hmmm...)
Many think me to be them (quite stupid of them, really)
Often there is a termagant under beautiful skin (arrrggg termites!...)
Imprudence is seldom to hospitable entertainment

Svo er líka voða gaman að ýta umslaginu og stíga útfyrir hnefaleikana, ef þið grípið rekann minn...

mánudagur, maí 26, 2003

akkuru virkar bloggið mitt inte???

sunnudagur, maí 25, 2003

PS ég er júróvisjón skyggn, ég spáði okkur (eða öllu heldur Birgittu) nefninlega 9 sætinu...
Tókst að skella bílhurð á hendina á mér núna rétt í þessu... Kenni mömmu bíl alfarið um það (þetta var samt hurðin á pabba bíl...) af því að ég hefði aldrei verið að reyna að loka á svona asnalega hátt ef maður fengi ekki alltaf klikkaðan straum þegar maður kemur við mömmubíl!

Gaman í gær! Fór til Steinunnar og Ásgeirs og svo í bæinn, massafínt, nema hvað ég er að spá í að hætta að drekka (nema kannski hugsanlega fyrir hádegi á miðvikudögum), ég hreinlega höndla ekki að bíða svona lengi eftir leigubíl...

Anyways happy happy fun fun og ég vil nota tækifærið og óska Steinunni og Ásgeiri rosalega vel til hamingju með íbúðinna!!!

föstudagur, maí 23, 2003

Hahaha það lýtur út fyrir að einhver nágranni hafi kvartað yfir listrænum meistaraverkum sem voru krítuð á planið hér í gær. Snemma í morgun mættu nefninlega borgarstarfsmenn með háþrýstigræjur og þrifu allt krítið í burtu...

fimmtudagur, maí 22, 2003

Dumdililumm dagurinn bráðum búin, ein bara búin að borða einhvern vibba í dag, kókópuffs og kökur og ís, í alvöru það er vibbi. Samt voða gott svona einu sinni eða tvisvar (nammigrís nammigrís).

En spurningin sem brennur á allra vörum er: Hvar er Eva???
Gettu hver á afmæli!!!

miðvikudagur, maí 21, 2003

Four down, only a single table left, þetta fer að verða síðasti séns...
Er svindl að segjast eiga afmæli þegar klukkan slær tólf á miðnætti???
BunBun!!!

three down, two to go... enn sjéns fyrir málingarglaða að kíkja í heimsókn...
ég bara skil þetta ekki, um leið og ég er búin í skólanum þá er eins og ég hafi ekki lengur neitt að segja. Ok, partur af vandamálinu er að ég hef alveg hluti að segja, mér bara langar ekki að segja ykkur frá þeim (nothing personal, -riiiiiiight), but enough of subtle insults :-) , todey I meide me garden holy með smá hjálp from me special little friend Speedy. Ótrúlega gaman. Eða ekki. Málaði líka tvö garðhúsgögn, á þrjú eftir, sjálfboðaliðar eru velkomnir í málingarvinnu á morgun.

Jiminneini, var að lesa þetta aftur, ótrúlega óspennandi og leiðinlegt, skal þetta standa eða strokast það út? Þitt er valið...

föstudagur, maí 16, 2003

djamm í kvöld

miðvikudagur, maí 14, 2003

Og just in case you were wondering, ég gleymdi ekki afmælunum ykkar Steinunn og Rúna, ég gat bara ómögulega munað hvor ætti afmæli hvorn daginn (*jæks*) og svo vildi ég ekki trufla ykkur í próflestrinum (ehh... hehe... já, þannig var það...) alla vega:
Til hamingju með afmælin!!!

mánudagur, maí 12, 2003

Vá, who would have guessed, Árbær er samkvæmt nýjustu fréttum í Grafarvogi, eða svo heldur allavega fólkið í Auganu - gleraugnaverslun. Mín kenning er að þau sjái eitthvað illa og hafi bara hreinlega lesið vitlaust á borgarkortið sitt, kannski vantar þau bara ný gleraugu.

P.S. ég er búin í prófum :-)

sunnudagur, maí 11, 2003

hahahaha eftir 13 klukkustundir verð ég búin í prófum...
13 klukkustundir í að ég geti byrjað á 4 bókinni í Ringo trilogíunni
13 klukkustundir í að ég sé frjáls
13 klukkustundir þar til ég geng af göflunum, fari á límingunum, hrökkvi af hjörunum
13 klukkustundir
It´s læri-time.
P.S. fellapakk er virkilega mikið pakk. Allavega miðað við þau viðbrögð sem Guðrún Helga hefur verið að fá...
nema Eyrún, enda var hún aldrei í Fellaskóla!!! (fjúkk þar slappstu vel)

laugardagur, maí 10, 2003

Kosningar: krossapróf með nokkrum svarmöguleikum, aðeins má merka við eitt svar, en spurningin er ekki gefin upp.
Upplýsingar um rétt svar koma ekki fram fyrr en eftir nokkur ár, ef nokkurntíma. Svör annara sem prófið taka koma í ljós á innan við sólarhring.

fimmtudagur, maí 08, 2003

Sjaldan kemur ein báran stök, það er ekki nóg með að Eva sé búin að festa kaup á íbúð og eiga afmæli, hún er líka búin að fá inngöngu í viðskiptafræði í HR. Rúna bara komin með samkeppni :-).
Til hamingju með allt Eva!!!

miðvikudagur, maí 07, 2003

Og afmælisbarn dagsins er Eva Hrund, hún lengi lifi! Húrra Húrra HÚRRA!!!
hehehe tók prófið á afstaða.net og það kom mér ekki á óvart að ég er 0% vinstri grænn
Þegar ofskynjanir gera vart við sig þá er maður búin að læra a.m.k. klukkutíma of lengi

mánudagur, maí 05, 2003

Ig ifir i ilvirligri mil, Ivi ig Hiffi iri biin ið kiipi sir ibið i Ilftimiri!!! Til himingji mið þið!!!
Djifilsins, Iirin ir biin ið liti mig fi i-mil i hiilin!!! Ig git biri higsið i i-mili. Þitti ir hriðiligt!!!

föstudagur, maí 02, 2003

Ég er lúser, fattaði í gær þegar ég var komin í bíóið og stödd inni pakkfullum sal að ég var ennþá með hnjáhlífarnar frá því að ég fór á línuskauta um morguninn... að vísu innan undir, en kommon for crying out loud, hnjáhlífar!!!!
Var í bíó á X Men 2, gaman gaman.
Sá leysershowið frá Íslandsbanka alveg í nýju ljósi, salurinn sprakk þegar Scooter byrjaði, og svo gat ég ekki hætt að hlæja fyrr en þegar lagið var búið og fólk fór að klappa... bara fyndið, samt svoldið had to be there dæmi...

laugardagur, apríl 26, 2003

Blehh ég hef verið þreytt þegar ég skrifaði síðast, I totally forgot ze funny part...

Allt gekk ágætlega þegar ég var með Ellu að línuskautast, ég reyndar datt einu sinni því ég var eitthvað svo upptekin við að horfa fram fyrir mig að ég sá ekki kantinn sem nálgaðist óðum. Lenti svo á öðru búbísinu, vont en spaugilegt.

Það var samt ekki fyrr en ég fór með Berglindi og Bliku sem hlutir fóru að gerast. Fyrst fékk ég stein inná milli hjólanna á línuskautanum svo að hægri skautinn hætti að snúast, ekkert við því að gera annað en senda Beggsið heim að sækja sextant og skrúfa draslið í sundur. Lítið mál, nema hvað Berglind var ótrúlega lengi að finna sextantana þó svo hún geri það á endanum.

Það næsta sem gerist var samt öllu verra, skyndilega kemur risagat í göngustíginn sem hafði verið fyllt uppí með grófri möl. Að sjálfsögðu drífa línuskautarnir ekki yfir það svo ég ákveð að fá hjólið hennar Beggsý lánað, og hjóla bara á línuskautum yfir þetta. Fólkið sem var fyrir aftan okkur fannst þetta alveg óskaplega fyndið, but I can live with that.
Þegar ég er komin yfir mölina stoppa ég hljólið í smá brekku og stíg af. Nema hvað. Hvernig fer maður af hjóli, lyftir annari löppinni yfir hnakkinn og setur hana svo niður, right??? Ekki sniðugt fyrir fólk á línuskautum í brekku. Löppin sem átti að standa styrk rann bara eitthvað í burtu og fell við og fipast allri. Tekst á einhvern snilldarlegan hátt að krækja brjóstahaldaranum í hnakkinn og rífa hann (bh-inn sko, ekki hnakkinn) og er bara öll eins og einhver skítaplebbi og skammast mín niðrí tær.
Fólkinu sem áður hafði hlegið þegar ég hjólaði yfir mölina, hlær náttúrulega ennþá meira núna. Og þegar þau taka fram úr okkur tekur eitt þeirra utanum mig og spyr blíðlega "Er ekki allt í lagi með þig???", ég var alveg eins og algjör asni svaraði bara skömmustusamlega "Jú jú..."
Ég er svo dugleg, einhver ætti að gefa mér orðu eða eitthvað.

Vaknaði snemma (a.k.a. 8:30), fór á fætur, missti þar af leiðandi af Þórunni þegar hún kom að sækja hjólið sitt. Þar sem allir reiknuðu með að ég væri sofandi inní herbergi og voru eitthvað að reyna ná sambandi við mig í gegnum svefnherbergisgluggann... sillý them.
Hringdi svo í Þórunni og reyndi að fá hana með mér á línuskauta, það gekk ekki, hún var að fá gesti. Hringdi þá í Ellu ofurgellu og Evu svefnpurku, Ella var meira en lítið til í að koma með mér, en Eva var sofandi svo ekki náðist í hana.
Um tíu leytið lögðum við af stað heima frá mér (Seláshverfi) og fórum sem leið lá niður Elliðaárdalinn, gegnum Fossvoginn og alla leið útí Nauthólsvík. Áfram héldum við svo út eftir Ægissíðu, þaðan fórum við niðrí Háskóla og sóttum verkefni fyrir mig, héldum áfram niðrí miðbæ, brunuðum fram hjá tjörninni og stoppuðum á Bæjarins Bestu. Þaðan lá leiðin eftir Sæbrautinni að Sólfarinu, en þangað sótti Haffi okkur og keyrði heim.

Þetta var samt ekki búið, því þegar ég kom heim plataði ég systur mína til að fara með mér og kettinum, út í Elliðaárdal, uppí Efra Breiðholt, heim til Eyrúnar skvísu og svo stóran hring aftur heim. Kötturinn var náttúrulega alveg búinn, og hafði varla orku til að gelta á nokkrar kisur sem við mættum.

Og ég er alveg búin á því, en hvað segiði, orðu???
Jæja, þá er aðalfundur nördanna búinn, ég er orðinn IAESTE fulltrúi og skemmtinefnd. Húrra fyrir því!!!

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Tekið verður við sumargjöfum í dag á milli klukkan 3 og 5... gleðilegt sumar :-)
Númer fimm og sjö á listanum hans Ara um hvernig eigi að falla með glæsibrag:

(v) Lestu spurningarnar upphátt og farðu svo að rífast við sjálfan þig hvert rétta svarið skyldi vera. Ef þú ert beðin um að hætta, segðu "Jújú, og þú getur bara heyrt mig hugsa" .....talaðu svo um hvað kennarinn er mikið fíbbl.
(vii) Eftir svona 5mín af prófinu kallaðu þá á kennarann "Hvað er þetta?? Ég hef sko mætt í tíma alla önnina og ég skil ekkert í þessu!!! Og hver ert þú eiginlega?!?!

hehehe

miðvikudagur, apríl 23, 2003

Síðast þegar ég birti mynd á þessari annars ágætu heimasíðu var sagt við mig að ég gæti aldrei nokkurntíman slegið hana út, - I beg to differ...



þriðjudagur, apríl 22, 2003

drap shoutoutið mitt endanlega, skil ekki hvernig *bömmer*
annars er hann Ari með skemmtilega pælingu/ráðleggingu svona í tilefni af prófunum

sunnudagur, apríl 20, 2003

Update: Problem, we have a Houston... hrekkurinn backfired. Pabbi fann eitt páskaeggið í morgun og endurfaldi það áður en hann fór út á land! Og hvað segir það okkur??? I will spend the rest of the day looking for ze missing páskaegg... djö!!!
nei hún fann eitt!
3 korter, still looking...
hahahaha ég bara verð að segja ykkur frá prakkarastriki dagsins...

En fyrst smá forsaga:
Þannig er að undanfarin ár hefur alltaf farið fram páskaeggjaleit á páskadagsmorgun. Hún virkar þannig að pabbi hefur falið páskaeggin og samið vísbendingar sem vísa á aðrar vísbendingar og svo framvegis þangað til maður finnur páskaeggið. Nema hvað, í gær þegar ég impraði á því að við þyrftum að leita að páskaeggjunum voru viðbrögðin ekki þau sem ég átti von á.
Allir voru á því að við værum vaxin uppúr þessu og að þetta væri bara barnaskapur og tímasóun. Ég varð alveg hlessa, því eins og flest ykkar vita er ég elst af systkynum mínum og mér fannst þetta alls ekkert barnalegt. Mér finnst þetta nefninlega alveg snilldar hefð sem ég ætla að hafa á mínu heimili þegar ég er orðin stór.

En allavega þegar ég hafði þurrkað framan úr mér tárin og gert mitt ýtrasta til að sætta mig við þessa stöðu mála, klæddi ég mig í betri fötin og fór til Þórunnar, og einsetti mér að hugsa ekki meira um þetta að sinni.

Það var ekki fyrr en ég var að koma heim í nótt sem púkinn í mér vaknaði. Hann kvíslaði:Ef þau vilja ekki taka þátt í þessu með mér, þá neyði ég þau til þess. ÉG fel páskaeggin múwahaHAHAHAHAHAAAAAAAAAA ... og svo gerði ég það, faldi öll páskaeggin og skyldi eftir miða frá "páskaeggja-þjófinum ógurlega" þar sem sagði að Blika varðhundurinn mikli hefði staðið hann að verki, og þess vegna væru páskaeggin dreifð út um alla íbúð.

Núna er rúmur hálftími síðan systir mín vaknaði, hún er búin að leita linnulaust út um allt síðan, -en ekkert fundið... hehehe... I´m evil

laugardagur, apríl 19, 2003

Er ég hætt að blogga?

Nei hélt ekki.

...eða hvað...

mánudagur, apríl 14, 2003

Bara snilld!!! Voða gaman í smá stund ef maður hefur ekkert að gera linkur

föstudagur, apríl 11, 2003

Er þetta maður fyrir Leoncie ???

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Ég fann alla týndu geisladiskana mína nema einn í gær. Húrra fyrir því!!! Nú vantar mig bara "Silence is sexy" and my life would be complete :-) jíhaaaa

PS sést fjöldi kommenta hjá ykkur, það er allavega ekki hjá mér. Hjálp!!!

miðvikudagur, apríl 09, 2003

Var að bæta við viskum... JEI!!!

þriðjudagur, apríl 08, 2003

Nýja viðmótsforritunarforritið er sko að gera góða hluti!
Plumb and Plumber is the best!!! (eða ekki)
Note to self: tala vandað mál skýrt og áheyrilega og þéra Þórunni

mánudagur, apríl 07, 2003

ég held enginn lesi þetta blogg nema ég... how sad is that :-(

laugardagur, apríl 05, 2003

two down, three to go!
sýningarnar gengu ágætlega, í fyrri sýningunni losnaði spöng á brjóstahaldaranum og á seinni sýningunni missti ég niður um mig buxurnar. Hátalari eða magnari á sviðinu sprakk (eða svo heyrði ég, hljóðið allavega datt út) á fyrri sýningunni, aumingja Finnsinn. Hefði samt getað verið verra, -held ég.
Er ég dugleg eða er ég biluð??? Var rétt í þessu að klára sauma glærahlýra á brjóstahaldara svo ég geti dansað í honum á morgun. Hef samt haft alla vikuna til að gera þetta, en neeeeei ég þar að fresta öllu fram á síðustu stundu. Það versta er samt að ég man að það var eitthvað eitt annað sem ég þarf að gera eða redda mér fyrir þessa sýningu í fyrramálið, -ég get bara ómögulega munað hvað það er...

Annars þá var ég í vísindaferð með Rúnu og viðskiptafræðinni. Mér leið ekkert alltof vel svona siglandi undir fölsku flaggi, huggaði mig samt við að ég þekkti engann á staðnum. Nema hvað, -auðvitað þekkti ég einhvern. Taldi mig samt hólpna þar sem viðkomandi myndi örugglega ekkert muna eftir mér, annað kom á daginn. *beep*

Það var samt alveg voða gaman, svo fórum við á Astró. Hitti Guðrúnu Helgu, við dönsuðum dansinn okkar, þetta stefnir í vandamál, alltaf þegar ég hitti stelpur úr jazzi í bænum þá tökum við þennan eða hinn dansinn (sérstaklega slæmt þegar nokkrar þeirra vinna á helstu skemmtistöðum borgarinnar). Áshildur og Helgi kíktu líka á okkur á Astró og svo kom Steina og við fórum þrjár að gefa öndunum! Massastuð!!! Stuttu seinna kom Eva Hrund og við fórum að rölta og fíflast.... já, vel heppnað föstudagskvöld vona bara að morgunndagurinn verði jafn góður!!!

(óskið mér fótbrots...)

föstudagur, apríl 04, 2003

Haffi er sniðugur gaur og stefnir í að veita vísindavefnum verðuga samkeppni. Endilega póstið spurningum í tagið hans!

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Hehehe var í korter að reyna að sannfæra Evu Hrund um að ég væri ekki að plata hana í gær þegar ég sagði henni að það væru myndir af henni og Ellu á tilverunni. Undir fyrirsögninni "Stelpur í sleik, brjóst og fleira". Go see for yourself :-) klikk her

þriðjudagur, apríl 01, 2003

ætlaði að breyta templatinu, men det wurker inte!! :-(
RÖDDIN er komin í loftið!!!

föstudagur, mars 28, 2003

hahaha... mín undurfagra rödd hefur nú verið gerð ódauðleg, ég var nefninlega að lesa inn á símsvara í gömlu vinnunni minni hahahaHAHAHAHA
Ester, velkomin í bloggið :-)
Uppáhaldsbloggin mín deyja í hrönnum... megi þau hvíla í friði.

fimmtudagur, mars 27, 2003

Gústi átti afmæli á þriðjudaginn og ég steingleymdi að óska honum til hamingju...

... en betra er seint en aldrei:

Til hamingju með afmælið Gústi
Ég:
-þoli ekki tölvukerfi sem taka sjálf sig of alvarlega
-skil ekki afhverju nemendaskrá svarar ekki í símann
-veit ekkert hvað ég á að gera núna
-nenni ekki að blogga meira

þriðjudagur, mars 25, 2003

HJÁLP!!! Í einhverju stundarbrjálæði tók ég að mér að fara út á Akranes á morgun að kynna verk- og tölvunarfræði fyrir fólkinu í framhaldsskólanum þar...
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ??!!?!?!?!
Eva Ösp er pisst, ég á eiginlega von á hatursbréfi hvað úr hverju. Skil svo sem afhverju, það er glatað þegar fáir mæta í partýin manns.
Mætti samt ekki sjálf, var á öðru skralli, skröltandi við hækju. Fór ekki þaðan fyrr en uppúr eitt, þá voru allir farnir frá EvuÖ og á Nellýs, af öllum stöðum, Nellýs???. Var engan veginn í stuði til að hobba á hækju þangað niðreftir.
Vona að þið hafið skemmt ykkur vel...

föstudagur, mars 21, 2003

"You know the world is going crazy when
the best rapper in the world is a white guy
the best golfer in the world is a black guy
France is accusing the US of arrogance
and Germany doesn´t want to go to war."

fimmtudagur, mars 20, 2003

miðvikudagur, mars 19, 2003

Hef tekið eftir því að póstarnir mínir hafa styst ansi mikið að undanförnu, held að það sé vegna þess að ég pósta of oft. Héðan í frá ætla ég að spara andagift mína og pósta svona tvisvar í viku eða eitthvað... right...
Er ég best eða er ég best?!?! Tókst að fá rhi tölvudótið mitt til að virka niðrí nörd!!! JEI!! Reyndar breytir það basically ekki neinu, but on the plus side: það virkar!!
:-)

þriðjudagur, mars 18, 2003

Tókst að slasa mig á rúðuþurkkunum á bílnum hans pabba, veit ekki alveg hvernig þar sem ég sat inní bílnum þegar þetta átti sér stað... anyway, rúðuþurkkur eru hættulegar!!!

mánudagur, mars 17, 2003

Fyndinn dagur í dag, fólk sem ég þekki lítið sem ekkert búið að vera að hrósa mér fyrir að hafa þorað í óvissuferðina. Svo eru aðrir sem hafa verið að kommenta á að ég hafi lifað ferðina af. Ég spyr nú bara eins og asni: "Hver andskotinn gerðist í fyrra!!?!?!"

sunnudagur, mars 16, 2003

Benni þykist vera hættur öllu bloggi, en ég hef séð við því hahahaHAHAHAHA

sign here ___________
Síðustu klukkustundir algjörs frelsis eru nú að líða. Eftir c.a. tvo tíma verða mamma og pabbi komin heim. Ég er ekki búin að rústa pleisinu eins og ég lofaði, og verð því víst að ganga á bak orða minni. Kvíðið samt engu, ég gerði nokkuð sem á eftir að bögga mömmu alveg óendanlega hehehe ég lagði bílnum hennar og pabba í vitlaust stæði hahahahaHAHAHA I´m evil!!!!
Annars er helgin bara búin að vera tiltölulega róleg, nema kannski föstudagur og laugardagsnótt, þá var sko setið að sumbli og sungið fram undir morgun, massa-gaman!!! Og gærkvöldið var nú líka mjög skemmtilegt með þeim Þórunni og Eyrúnu

Annars keypti ég mér sundbol fyrir helgi, svo það er skylda að hringja í mig ef þú ætlar í sund :-)

laugardagur, mars 15, 2003

Óvissuferðir eru skemmtilegar!!!

meira seinna, kannski :-)

PS Tóta, þetta tókst bara vel hjá okkur hehehe

föstudagur, mars 14, 2003

Érafaríferðalag
sé ykkur seinna (á morgun)

tjá

fimmtudagur, mars 13, 2003

OHH MY GOD, I KILLED MY SHOUT OUT!!!

HELP!!!
0100100001101001011011000110010001110101011100100010000001001010
1111001101101110011000010010000001000110011100100110100111110000
0111001001101001011010110111001101100100111100110111010001110100
01101001011100100000110100001010
Og afmælis"ekki lengur barn" dagsins er.... EVA ÖSP!!!

Til hamingju með daginn!!!