sunnudagur, ágúst 31, 2003

Bömmer bömmer bömmer... það eru allir að fara, Martin, Jasmina og Dinu fóru í morgun :-( alveg ótrúlega leiðinlegt... þunglyndi í aðsigi...
Góðu fréttirnar samt þær að Þórunn kom heim í gær :-)

fimmtudagur, ágúst 28, 2003

Já og eitt enn, ég er steliþjófur og stal Steinupartýi svo það verður hjá mér í staðinn :-)
Fór út að borða í gær, á Gallerý Fisk. Fékk ógeðslega góðan lax, næst ætla ég að panta mér hlýra *nammi nammi* slurrp*!!!
Fékk samt enn eitt af mínum margfrægu hlátursköstum, gat bara ekki hætt að hlæja... helvítið hann Las náði mynd af mér grátandi af hlátri með maskara út á miðjar kinnar og afskræmdan munn... helvítis...
Vill einhver koma með í Bláa Lónið á laugardaginn??? Kostar 1080,-kr (með hópafslætti, án hópafslátts er það 1200, -kr)

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

ploink!!! fyrsti skóladagurinn... geðheilsan hangir á bláþræði...

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

húrra! Eva og Haffi eru komin heim og ég hitti Rúnu á netinu og fékk kort frá Þórunni. Sjálfsvorkunartímabili lokið í bili...

mánudagur, ágúst 25, 2003

Ohhh ég sakna vina minna :-( fariði ekki bráðum að koma heim/hætta á næturvöktum/hafa smá tíma fyrir mig???? *sjálfsvorkun*

Annars var helgin alveg massíf hjá mér! Og eiginlega bara merkilega vel heppnuð.

Fór til Unnar á föstudaginn, Ondrej downloadaði svona fuck the sheep leik þar sem maður á að ríða öllum rollunum á tíma áður en fjárhundurinn eða fjárhirðirinn nær manni. Mjög skemmtilegt. Fór svo heim um 11 þá var matarpartýið hjá mömmu og pabba komið í full swing, búið að draga fram gítarana og alles. Skrifaði nokkra geisladiska, söng nokkur lög og fór að sofa um 3.

Það var samt á laugardagsmorgun sem helgin byrjaði fyrir alvöru!!
Var mætt klukkan 10 niðrí Sumarhöll til að taka rútu (með IAESTE/IMSIC/AISEC) uppí Landmannalaugar, ég og Unnur vorum að skipuleggja þetta (af því að ég er alltaf svo ofurskipulögð). Höfðum reyndar fengið símtal frá rútubílstjóranum kvöldið áður um að hann yrði svona hálftíma of seinn. Við náttúrulega bara, alltílagi, við ráðum við það. Samt orðið of seint að senda út tilkynningu um það þar sem útlensku krakkarnir hafa flestir bara aðgang að tölvu á dagvinnutíma.

Semsagt ég var komin klukkan 10, rútan var aftur á móti ekki komin fyrr en hálf tólf!!! Svo við biðum og biðum og biðum og biðum... Við Unnur keyptum smá bakaríisdót handa liðinu því allir voru svoldið pisst yfir þessum seinagangi, svo við átum og biðum og biðum og biðum




Vorum komin upp í Landmannalaugar uppúr 3, þá var tjaldað, farið í gönguferð, grillað (uhmmmmm maturinn var svo góður, grísakótilettur og grillað grænmeti, allskonar paprikur, laukar, rauðlaukar ofl. og svo náttúrulega húkkulaði bananar í eftirmat *slurrrp*). Svo fóru allir þeir sem ekki eru heyglar í laugarnar þrátt fyrir að það væri komið kolniðamyrkur og kalt úti!!! Semsagt ekki heyglar eru ég (auðvitað), Burkhard (Þýskaland), Marthe (Þýskaland) og Dinu (Rúmenía), já og rútubílstjórinn.

Svo var bara farið inní tjald að lúlla, reyndar fékk mitt tjald (ég, Marthe og Burkhard) hláturskast, gjörsamlega gátum ekki hætt að hlæja að Dinu í næsta tjaldi, það var svo ólýsanlega fyndið að heyra hann kvarta yfir því að hann myndi deyja, eða fá lungnabólgu og deyja, og deyja af því að hann var ekki með neina dýnu (sem er ekki góð pæling á þessu tjaldstæði!). Reyndar voru Burkhard og Marthe ekki með neina dýnu heldur, en out of the goodness of my heart þá deildi ég mínum tveimur með þeim :-) Svo vorum við með hástemdar yfirlýsingar um hversu mjúkar dýnurnar okkar væru (sem þær voru ekki!) og aumingja Dinu hélt áfram að spá sér lungnabólgu og við gátum ekki hætt að hlæja...

Vöknuðum snemma, Dinu var enn á lífi, undarlegt en satt. Fékk afar furðulegt náttúrufyrirbrigði skýrt eftir mér, kallast "the HildurLas phenomenon" svoldið sérstakt, fyrst kom alveg rosalega staðbundin jarðskjálfti undir einu tjaldinu (Alice, Jasmina og Kerstin), svo kom alveg furðuleg vindhviða sem tók svona vinstri sveig og felldi tjaldið þeirra ofan á þær... Var bara með snarræði sem okkur Las tókst að bjarga hinum tjöldunum frá sömu örlögum, allt hið furðulegasta mál...



Síðan eftir að hafa komið tjaldinu upp aftur (bara af eintómri góðmennsku) þá borðuðum við morgunmat, og eftir það fóru sumir í gönguferð að elta Las um óbyggðirnar en aðrir (ég, Unnur, Jasmina, Alice og Marthe, já og rútubílstjórinn) fórum í klukkutíma útreiðartúr. Svo fóru allir í laugarnar og voru þar þartil við þurftum að fara uppúr til að aftjalda og pakka saman rétt fyrir fjögur.

Harðstjórarnir Unnur og Hildur ákváðu að bruna bara beint í bæinn með einu 10 mínútna stoppi á Selfossi (enda orðnar of seinar í mat til Ondrejs, híhí). Erum við ekki vondar??? Bætti það svo eiginlega upp með að skutla Alice, Jasminu, Dinu og Burkhard heim til sín (í Garðabæ og Grafarvog) áður en ég fór í mat til Ondrejs út á Seltjarnarnes (þetta var allt í leiðinni, alveg í leiðinni...).

Anyways, maturinn var góður, félagskapurinn var góður (Ondrej, Unnur, Las, Martin, Ýmir og Erla). Fékk reyndar hláturskast yfir matnum, gat ekki hætt, hreinlega emjaði af hlátri yfir engu... veit ekki alveg hvað fólk var að halda... biðst afsökunar...

En samt, alveg hreint brilljant helgi :-)


föstudagur, ágúst 22, 2003

Var að fá nýja stundatöflu fyrir jazzinn, samkvæmt henni er ég í jazzi á:

mánudögum kl: 20:00
þriðjudögum kl: 19:00
miðvikudögum kl: 18:45
fimmtudögum kl: 19:00 og 20:15
föstudögum kl:16:45

Nokkuð gott... nokkuð gott

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

Ég er svo alþjóðleg!!
Á síðustu tveimur dögum hef ég verið að tala við fólk út um allan heim. Alveg rosalega skemmtilegt.
Talaði við Haffa á Spáni, fékk SMS frá Þórunni í Belgíu, talaði við Helgu í Þýskalandi, Guðrúnu Helgu í Danmörku, tyrkneskan kunningja í Noregi, tékkneskan kunningja í Þýskalandi, spænskan kunningja sem ég man ekki hvar er (samt ekki á Spáni) plús svo alla nemana sem eru hérna á Íslandi (frá Ástralíu, Makedóníu, Júgóslavíu, Bretlandi, Þýskalandi og Tælandi svona just to name a few).

Hver hefði trúað þessu? Internetið er alveg snilldar uppfinning!!!
Fékk SMS frá Þórunni í gær, allt gott að frétta. Gistir með einhverri Tyrkneskri stelpu. Bara voða gaman! Gott að heyra frá þér :-)

mánudagur, ágúst 18, 2003

Boink! Mér leiðist, þarf að læra, leiðist ennþá meira...

sunnudagur, ágúst 17, 2003

Ahhh nú er ég þreytt... skil samt ekki afhverju, var ekki nema til 5-6 í bænum í morgun og fór ekki á fætur fyrr en um 10 leytið. Engin ástæða til að vera þreyttur

Annars eru mamma og pabbi og Beggs að koma heim á morgun svo ég var að ryksuga og gera fínt :-) Hefði samt átt að byrja fyrr á því, þá hefði ég kannski náð að þvo bílana líka, það hefði verið smoooothhh.....

laugardagur, ágúst 16, 2003

föstudagur, ágúst 15, 2003

AHAHAHAHAHAHA það fyndnasta sem ég hef heyrt í langan tíma.
Unnur var að senda mér mail, en fattaði ekki að hún var að spamma allan IAESTE/IMSIC/AISEC mailing listan.
Vel yfir hundrað manns, bara til að segja mér hvað ég sé frábær (sem ég þreytist aldrei á að heyra) og að henni hefði fundist bloggið mitt fyndið...

ÓTRÚLEGA SNIÐUGT...
hmmm var að ná í myndir úr framköllun. Hafði ekki gert mér grein fyrir að auka hakan mín væri orðin alveg svona stór... átak í vændum... bíðið spennt!

Annars er það helst í fréttum að ég talaði við Þórunni í gær á MSN, hún er sko á Spáni. Vorum báðar með webcam og alles, ótrúlega miklir NÖRDAR!!!

fimmtudagur, ágúst 14, 2003

Ó hjálp, maður er svo slappur... spurning hvort ég sé með ofnæmi fyrir vinnunni, mér líður nefninlega verst þar: díbblað nebb og illt í eyrum. Hálfgrátandi hreinlega. Ekki sniðugt, ekki gaman...

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

Haha enginn bjór í dag (ekki enn) og enginn í gær heldur!!! Life is on an upward swing!! Jíha!!! Annars bara búin að vera góð vika so far... sofnaði þrisvar í vinnunni í gær (samtals í rétt tæpan klukkutíma) nokkuð gott... nokkuð gott... Samt ekki sniðugt, ég var gjörsamlega að drepast úr þreytu. Fór svo eftir vinnu á kaffihús, alltaf jafn sniðug. Var svo ekkert þreytt í morgun oneeeeeiiii

Samt bara gaman, er búin að plana helgina, planið er nokkurnveginn svona: Föstudagur -> keila og partý. Laugardagur -> Partý, menningarnótt, meira partý, flugeldasýning, enn meira partý. Sunnudagur -> þynnka og partý :-) híhíhí

Og ef einhverjir vinir mínir eru á landinu og vilja hitta mig endilega bjallið í mig, -you´ve got mí number!!!

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

ARRRRGGGG Í gær var mánudagur og ég var að drekka bjór... what is happening, -ég virðist stefna hraðbyri í átt til glötunar
-hildur bytta

mánudagur, ágúst 11, 2003

"Einn, tveir og allir komi saman
allir þeir sem hafa af skál og kvennafari gaman
gráti væl og grenjitón
ei gegnir nokkur kjaftur
syngjum dátt og höfum hátt
hellt´í glasið aftur!!!"

sunnudagur, ágúst 10, 2003

Vá hvað það var ógeðslega gaman hjá mér um helgina. Var bara að koma heim, mig langar aftur út... NÚNA!!! Ótrúlega ótrúlega ÓTRÚLEGA GAMAN!

Bara verst að þurfa að fara aftur og vita að maður á sennilega aldrei eftir að hitta stóran hluta af öllu nýju vinunum aftur :c( grát en kannski... það má alltaf vona

föstudagur, ágúst 01, 2003

Ég er að fara í ferðalag tralalalalala!!! Gisti á Akureyri í nótt og við Mývatn næstu nótt og svo aftur á Akureyri og svo í Borgarfirði og svo heima hjá mér í tvær nætur og svo í DTU í 3 nætur og svo er ég ein heima í langan tíma held ég. Það er bara allt að gerast!!! JíHAAAAA!!!

Anyways, must go and buy food and stuff

sé ykkur seinna